Thursday, November 22, 2007

Við og við

Við og við
sem alltaf erum
allstaðar að nálgast þig

spyrjum ekki að leikslokum
þótt dagur renni sitt skeið

Við og við
sem eigum framtíð
sem að verður hér ofan á

allt er eins og leiðsla í draumi
fegurðin er allstaðar
þú ert líka í þessum saumi
þegar þú nálgast mig

Draumur erum við tvö
eins og þessi verund er

látum koma látum fara
allt sem við og við
erum nú

Við og við
sem alltaf erum
allstaðar

No comments: