Sunday, November 18, 2007

Upp nú upp nú

Upp nú upp nú ljós
aftur er dagur rís
útundan logum ós
litina ykkar til nýs

Vakna nú vökular strendur
og vitja með ljóssins loga
langt í fjarska rísandi rendur
úr regnsins óskarboga

Kallið í kletta gil
á krumma sem vaknar þá
verði það sem verða vil
við vísur hans og þrá

Allt er í hringi einum
eilífðin hringrás er
braut með stráðum steinum
stríð öflin í heimi hér

No comments: