Sunday, November 18, 2007

Haustlitir

Haustlitir koma og fara
og setja sín svipmót á
gamla stíga vorsins

Allt hefur sitt upphaf og endir
Dagurinn rennur í vindi
og feykir einu og einu laufi
til og frá
líkt og kátt dansandi barn

Brátt kveðja haustlitirnir
aftur

Allt hefur sitt upphaf og endir

No comments: