Thursday, November 22, 2007

Ég elska

Ég elska vorið
þegar það sleikir sólskinið
af tungu frostsins

ég elska haustið
þegar það tárast
gulbrúnu laufi

ég elska þig líka
í draumi náttar
þegar tungl veður ský
yfir dimma voga

og sængina okkar

No comments: