Tuesday, November 20, 2007

Um Vetur

Dagurinn líður
í dansandi skugga
geimurinn víður
virðist frá glugga
allt er við tíma
sem tíðarins glíma

Fljótandi skýin
í fjarlægðinni líða
sólargeisli tiginn
glampandi hlíða
værð yfir fjöllum
eilífð í þeim öllum

Veturinn byrjar
í blæjulogns blíðu
vætan nú kyrjar
kórsöng í stríðu
í mókinu hljómar
myrkursins ómar



- í smíðum -

No comments: