Tuesday, December 23, 2008

Ég er

Ég er vindurinn
Ég er eyðimerkursandurinn
Ég er allt sem er
Ég er vatnið
Ég er loftið
Ég er andinn
í þér
og í sjálfum mér

Ég er stríðið
Ég er friðurinn
Ég er það sem að höndum ber
Ég er neyðin
Ég er allsnægtir
Ég er spegilsins mynduga gler
Ég er blár himininn
sem ofar skýjum er
og ávallt tiginn ber

Ég er vetrar ríki
Ég er vonarinnar díki
Ég er ást í sjálfum þér
Ég er hæðin háa
Ég er hreysið lága
Ég er allt sem að höndum ber
Ég er fátæktin hrein
Ég er græðginnar mein
Ég er ríka mansins allsnægta ker

Ég er einsemdin ein
Ég er lífið á grænni grein
Ég er árið sem kemur og fer
Ég er boðun nýs dags
Ég er ljóð hvers brags
Ég er andinn
í þér
og í sjálfum mér

Thursday, December 4, 2008

Ástin er ein

Ástin er ein
í hjarta sínu
aðeins ein

Í grænu grasi vonarinnar
tálfestir hún endrum of sinnum
eða tapar í leik

Kaleikar
með margbrögðóttum
dreggjum sínum
fylla varir hennar

Kuldinn úti

Kuldinn úti
veitir ei margt
aðeins meira kul
og hroll

Dagar í fótsporum
taldir
aðeins nokkrir
í senn

Í desember
er myrkrinu
bægt frá
með ljósi

Saturday, December 15, 2007

Eitt skref í einu

Dagurinn líður
í löngum strætum
áfram hann tifar

Eitt skref í einu
og allt verður öðruvísi
en í gær

Sumar kemur og fer
og haust litir verða
uns vetur byrjar
snögglega

Þú ert sem laufblað
sem lifir
og laufgast í geislum sólar

Það hættir aldrei að rigna

Friday, December 7, 2007

Dagar sem dimmar nætur

Nú eru dagar sem dimmar nætur
dansandi skuggar og kvikur,
erfitt er stundum að fara á fætur
við eilífðar nætur blikur.
Norðurljósin leika um himinn
logarnir hverfa svo brátt,
þungbúinn lífsins þema ég finn
í þögninni við hljóða sátt.

Allt er svo einmannalegt nú hér
sem óráðin gáta draumsins,
andartakið svo óraunverulegt er
í innviðum hugsanna saumsins.
Hugurinn líður hljóðlega um nótt
heimurinn sefur svo blítt,
lífið í draumi leitar af þrótt
að leiða nýjan dag upp á nýtt.

Nú eru dagar drollandi og hljóðir
dögun nýs árs kemur þó brátt,
blikandi logar lífsins glóðir
leikandi opnast þá upp á gátt.
Hamingjan er í hringstiga ljós
happ og glöpp spor gengin,
frostið á glugga gefur hvíta rós
gleði úr dimmunni er fengin

Sunday, November 25, 2007

Flýgur krummi

Flýgur krummi
í náttmyrkri
einn hann er á ferð

Krunkar hann og krunkar
að kalt sé núna úti

Krunkar hann og krunkar
að brátt fari vetur að herða
krunkar hann og krunkar
að von sé allra veðra

Flýgur krummi
í dagrenningu
við lága geisla sólar

Einmanalegt er úti
á lágnættinu

Stund er í einsemd

Stund er í einsemd
myrkvaðra þagna
og söngvum hljóðra nátta

Skuggarnir dansa í garði
við tunglskinsbirtu
vetrar nætur

Ókunnugir koma þeir
og fara
í gærdagsins nökkva hljómum

Mig dreymir
í birtunni bláu
að bráðum komi vorið
á ný
inn um gluggann
til mín