Saturday, December 15, 2007

Eitt skref í einu

Dagurinn líður
í löngum strætum
áfram hann tifar

Eitt skref í einu
og allt verður öðruvísi
en í gær

Sumar kemur og fer
og haust litir verða
uns vetur byrjar
snögglega

Þú ert sem laufblað
sem lifir
og laufgast í geislum sólar

Það hættir aldrei að rigna

Friday, December 7, 2007

Dagar sem dimmar nætur

Nú eru dagar sem dimmar nætur
dansandi skuggar og kvikur,
erfitt er stundum að fara á fætur
við eilífðar nætur blikur.
Norðurljósin leika um himinn
logarnir hverfa svo brátt,
þungbúinn lífsins þema ég finn
í þögninni við hljóða sátt.

Allt er svo einmannalegt nú hér
sem óráðin gáta draumsins,
andartakið svo óraunverulegt er
í innviðum hugsanna saumsins.
Hugurinn líður hljóðlega um nótt
heimurinn sefur svo blítt,
lífið í draumi leitar af þrótt
að leiða nýjan dag upp á nýtt.

Nú eru dagar drollandi og hljóðir
dögun nýs árs kemur þó brátt,
blikandi logar lífsins glóðir
leikandi opnast þá upp á gátt.
Hamingjan er í hringstiga ljós
happ og glöpp spor gengin,
frostið á glugga gefur hvíta rós
gleði úr dimmunni er fengin

Sunday, November 25, 2007

Flýgur krummi

Flýgur krummi
í náttmyrkri
einn hann er á ferð

Krunkar hann og krunkar
að kalt sé núna úti

Krunkar hann og krunkar
að brátt fari vetur að herða
krunkar hann og krunkar
að von sé allra veðra

Flýgur krummi
í dagrenningu
við lága geisla sólar

Einmanalegt er úti
á lágnættinu

Stund er í einsemd

Stund er í einsemd
myrkvaðra þagna
og söngvum hljóðra nátta

Skuggarnir dansa í garði
við tunglskinsbirtu
vetrar nætur

Ókunnugir koma þeir
og fara
í gærdagsins nökkva hljómum

Mig dreymir
í birtunni bláu
að bráðum komi vorið
á ný
inn um gluggann
til mín

Nú fjallið stendur eitt í snjá
tundurskorinna kletta
farlægðir hafa farlægst augað
inn í frost og vetur

Nú myrkrið er bróðir þinn
og stjörnubjört nóttin
umvefur auðnir brekkunnar
sem eitt sinn var í blómaskrúða

Saturday, November 24, 2007

Hér geng ég enn

Hér geng ég enn
í skuggum sem staðnemast
allt er í myrkri
óráðinna gata

Lauf gærdagsins
er orðið gulbrúnt
af regni og haustlitum
hljóðlátur er vegurinn
framundan

Hér geng ég enn
og leita til beggja átta
af nýjum leiðum
litaðra laufa

Thursday, November 22, 2007

Nokkrar haust hæku stemmingar

Haustið er komið
aftur gul rauðbrúnt laufið
- eitt, tvö, þrjú, falla

~*~

Flugunum fækkar
ein og ein kemst þó inn enn
- fyrir veturinn

~*~

Í haustvindinum
eru laufin svo fögur
- ennþá er allt grænt

~*~

Fuglarnir syngja
fallega söngva sumars
- nokkra daga enn

~*~

Leiðin er þögul
eftir gangstígum laufsins
- það skrjáfar aðeins

~*~

Kyrrðin hvarvetna
eftir sumarblíðuna
- nú falla rauð lauf

~*~

Vatnsdropi fellur
úr krana um hljóða nótt
- endurómandi

~*~

Tíminn sem eilífur
í hljóðri næturkyrrðinni
- senn er vetur hér

~*~

Hver dagur sem fer
kemur aldrei hér aftur
- samt er haust komið