Friday, February 6, 2009

Vetra hæka

Frost vetra garður,
vindur strýkur bera grein
- hjúpaða snjói

Dagur bjartur

Dagur bjartur
mildur og tær
um vetrarláð

Allt er svo hvítt
og frosið
þessa tíð

Framundir kvöld
er þögult
og blá-hvítur blær
yfir öllu

Ég renni augum
yfir furðu skúlptúra
nýfallins snjós

Elskulegi hvalur

Elskulegi hvalur
vertu vinur minn,
engum ertu falur
er ferð þú um höfin

Elskulegi hvalur
því gera þeir sonalagað?
Stór er sjávar salur
og öllu jafnvægi
þar vel til hagað

Hví þá að skera þig?

Allt er svo fagurt enn

Allt er svo fagurt enn
yndisleiki landsins lifir,
hugumstórir hugsandi men
hjartað ótt þar tifir.

Hamingjan er í orðum
og öllum þess fagurgala,
undir lands ýta storðum
ilhýruna þeir þar tala.

Fegurð í fögrum leik
fleygum setningum braga,
kveiktu sem fífukveik
kvæðaháttum allra daga.

Sem væri sólin bjarta
silfra grundina á,
og senda út það svarta
sem sekkur hverri þrá.

Tuesday, December 23, 2008

Ég er

Ég er vindurinn
Ég er eyðimerkursandurinn
Ég er allt sem er
Ég er vatnið
Ég er loftið
Ég er andinn
í þér
og í sjálfum mér

Ég er stríðið
Ég er friðurinn
Ég er það sem að höndum ber
Ég er neyðin
Ég er allsnægtir
Ég er spegilsins mynduga gler
Ég er blár himininn
sem ofar skýjum er
og ávallt tiginn ber

Ég er vetrar ríki
Ég er vonarinnar díki
Ég er ást í sjálfum þér
Ég er hæðin háa
Ég er hreysið lága
Ég er allt sem að höndum ber
Ég er fátæktin hrein
Ég er græðginnar mein
Ég er ríka mansins allsnægta ker

Ég er einsemdin ein
Ég er lífið á grænni grein
Ég er árið sem kemur og fer
Ég er boðun nýs dags
Ég er ljóð hvers brags
Ég er andinn
í þér
og í sjálfum mér

Thursday, December 4, 2008

Ástin er ein

Ástin er ein
í hjarta sínu
aðeins ein

Í grænu grasi vonarinnar
tálfestir hún endrum of sinnum
eða tapar í leik

Kaleikar
með margbrögðóttum
dreggjum sínum
fylla varir hennar

Kuldinn úti

Kuldinn úti
veitir ei margt
aðeins meira kul
og hroll

Dagar í fótsporum
taldir
aðeins nokkrir
í senn

Í desember
er myrkrinu
bægt frá
með ljósi